Færsluflokkur: Spaugilegt

Did you miss me ?

Did you miss me ?


Nokkrir bull málshættir

Betra er að ganga fram af fólki en björgum.
Betra er að ráða menn með réttu ráði en ráðamenn.
Léttara er að sóla sig en skó.
Betri er einn fugl í sósu en tveir í frysti.
Betra er langlífi en harðlífi.
Sá hlær oft sem víða hlær.
Margur sefur yfir sig sem vaknar ekki á réttum tíma.
Rangt er alltaf rangt, það er rétt.
Margur hefur farið flatt á hálum ís
Sjaldan er góður matur of oft tugginn.
Heima er best í hófi.
Betri eru læti en ranglæti
Sjaldan fara sköllóttir í hár saman.
Oft eru bílstjórar útkeyrðir.
Betra er að vera sí-virðulegur en svívirðilegur.


Vaðlaheiðarvegavinnuverkfærageymsluskúra­útidyralyklakippuhringur

Vaðlaheiðarvegavinnuverkfærageymsluskúra­útidyralyklakippuhringur er þetta þekktasta "lengsta" orðið í íslensku ?
 
 
 

mbl.is Gengur hægt í Vaðlaheiðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt að hristast út um allt

minor-eathquake-etch-a-sketch2Hvað framleiða kýr í jarðskjálfta ?

Nú auðvitað mjólkurhristing 

Merkilegt. Er alltaf að verða meira um jarðskálfta ? Maður getur nú spurt sig. Þessi var sem betur fer ekki hættulegur. 

Leitaði aðeins á mbl og fleiri stöðum að fréttum um skjálfta. Fann t.d. þetta

Risa skjálfti í Tyrklandi

Risa­skjálfti í Nepal

Risa­skjálfti við Salómons­eyj­ar

Suðurlandskjálfti  

Er guð grimmur ? Er meira um jarðskjálfta ?

Allt Ísland - jarðskjálftar síðustu 48 klst.


mbl.is Jarðskjálfti skelfdi íbúa í Gautaborg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smá brandari

Stærðfræðikennarinn: Hvað er helmingurinn af 8?
Nemandinn: Meinarðu lóðrétt eða lárétt?
Stærðfræðikennarinn: Hvað áttu við?
Nemandinn: Jú, helmingurinn lóðrétt er 3, en lárétt 0!


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband